Ímyndið ykkur að þið búið í samfélagi þar sem flestir eru sammála um flest - og það það sé óþægilegt eða jafnvel háskalegt að efast eða vera ósammála. Enginn er handtekinn eða settur í fangelsi fyrir að spyrja spurninga — ekki strax. Valdbeitingin er lymskulegri: fólk er rekið úr starfi, úthrópað á samfélagsmiðlum o.s.frv. Þetta byrjar í stuttum setningum: „Þú mátt ekki segja þetta“ / „þú gætir orðið umdeildur.“
Solzhenitsyn þekkti þetta af eigin raun. Hann benti á að alræðið á Sovétríkjunum hefði ekki skollið á skyndilega með fjöldahandtökum eina nóttina, heldur með því að fólk hætti smám saman að andmæla og fór að taka þátt í lygum — stundum af ótta, stundum af hugleysi og smám saman varð kerfið öllu yfirsterkara. Ályktun hans var að fólk hefði ekki elskað frelsið nógu mikið og hafi ekki áttað sig á hvað var að gerast fyrr en það var of seint.
Á Vesturlöndum í dag búa menn ekki við beint ofbeldi af hálfu ríkisvalds, en þrýstingurinn er raunverulegur. Þegar fólki er ekki leyft að efast, spyrja „af hverju?“ eða andæfa án þess að verða fyrir aðkasti, þá gerist tvennt: 1. Vondar hugmyndir festast í sessi jafnvel þótt þær séu augljóslega rangar eða skaðlegar. 2. Valdið til að stjórna umræðunni þjappast saman í hendur fárra manna hjá ríkisreknum fjölmiðlum, ríkisreknum háskólum og ríkisreknum stofnunum eins og fjölmiðlanefnd.
Þetta er skrifað til áminningar um nauðsyn þess að menn verji vettvang frjálsrar rökræðu þar sem menn mega færa fram efasemdir og kalla eftir rökum, því nú sem fyrr er það er besta vörnin gegn því að samfélagið umbreytist hægt og rólega í átt að kerfi þar sem yfirvöld skilgreina hvað er satt og ósatt - og þar sem venjulegt fólk þorir ekki lengur að tjá sig af ótta við aðkast og stimpla.
Skilvirkasta leiðin til að vernda þennan frjálsa vettvang er að fylgja ráðum Solzhenitsyn og neita að taka þátt í lyginni. Neita að segja það sem maður veit að er ósatt (jafnvel þótt það sé þægilegra), voga sér að spyrja spurninga (þótt það sé ávísun á tímabundnar óvinsældir) og hvetja aðra til að setja sjónarmið sín fram á rökstuddan, málefnalegan hátt.
Þetta er engin töfralausn, en þetta er andsvar til að stöðva óheillaþróun áður en breytingarnar verða óafturkræfar.
RÚV ver tilvistarrétt sinn með vísan til háleitra menningarlegra markmiða, en hagar sér eins og gula pressan.
1
29
783
Nú liggur fyrir að fjármálaráðherra hefur í þrígang sagt Alþingi ósatt um málefni Landsvirkjunar og aðkomu sína. Í fyrsta lagi fullyrti hann gegn betri vitund að hann hefði sagt "alla söguna" um ágreininginn sem upp kom í stjórn og leyndi þar með innihaldi minnisblaðs um áhyggjur forstjórans af pólitískum afskiptum ráðuneytisins. Í öðru lagi sagði Daði Már - ranglega - að engir stjórnarfundir hefðu verið haldnir án forstjórans. Í þriðja lagi hefur hann nú viðurkennt að hafa haft bein pólitísk afskipti af rekstri Landsvirkjunar.
Eins og ég rakti í morgunþætti Bylgjunnar í gær er Landsvirkjun nú í höndum stjórnar sem nýtur ekki trausts þjóðarinnar á sama tíma og ráðherrann sem ábyrgð ber á stjórninni nýtur ekki trausts Alþingis. Frammi fyrir þessu er augljóst að ráðherrann þarf að segja af sér og stjórnin þarf einnig að fara, því meginhagsmunir þjóðarinnar liggja í því að þarna sé starfhæf stjórn sem getur tryggt öruggan og ópólitískan rekstur. Sem forsætisráðherra þarf Kristrún Frostadóttir að grípa inn í málið. Skipa þarf nýjan fjármálaráðherra sem getur skipað nýja stjórn og endurheimt forstjóra Landsvirkjunar til að koma á stöðugleika hjá Landsvirkjun sem er ein af grunnstoðum afkomu okkar og atvinnulífs.
Það kemur ennþá fyrir að ég verði kjaftstopp, síðast í gær þegar ég hitti mann sem ég hélt að væri kominn til vits og ára, þangað til hann sagði að það væri svo fínt að búa á Íslandi, því hér væri "frí heilsugæsla". Einhver þarf að útskýra fyrir mér hvernig það getur gerst að fólk nái miðjum aldri án þess að skilja að heilsugæslan hér er allt annað en "frí". Hún er fjármögnuð af skattgreiðendum og raunar notendum líka með þeim "árangri" að blásið hefur verið út rándýrt kerfi sem skilar ekki árangri í samræmi við kostnaðinn. Biðlistar eru langir, stjórnsýslan þung og enginn innan kerfisins hefur hvata til að lækka kostnaðinn. Eina ályktunin sem ég leyfi mér að draga af þessu samtali er að menntakerfið (sem líka er dýrt og óskilvirkt) útskrifi fólk án þess að kenna þeim að hugsa rökrétt.
Michael Carrick, núverandi þjálfari Man. Utd., var m.a. leikmaður West Ham og Tottenham áður en hann fór til Man. Utd. Þótt Carrick hafi eflaust jákvæðar tilfinningar til West Ham myndi hann aldrei komast upp með að lýsa því yfir að til greina kæmi að láta Man.Utd. skora sjálfsmark til að þóknast West Ham.
Þótt þetta megi kallast augljós sannindi eru Íslendingar nú með utanríkisráðherra sem ber augljóslega mjög hlýjan hug til ESB. Svo hlýjan að hún íhugar að stilla upp "vörn" sem útiloki ekki að skora sjálfsmark af hálfu Íslands með því að "viðurkenna samningsbrot".
Á fundi með utanríkismálanefnd í gær minnti ég þingmenn á að þeir hafa undirritað drengskaparheit um að vernda og virða stjórnarskrána og að frumskylda þeirra er við íslenska hagsmuni en ekki hagsmuni ESB. Ég varaði þingmenn við því að verði frumvarpið að lögum gæti það gert dómstól ESB kleift að framkvæma lögfræðilegt valdarán á Íslandi með framsæknum ("dýnamískum") lögskýringum sem ýta munu undir stöðugt nánari lagalegan samruna á Evrópuréttinum í hag en á kostnað stjórnarskrárinnar. Þingmenn mega ekki vera slegnir valkvæðri blindu gagnvart þessu. EES samningurinn stendur ekki ofar íslensku stjórnarskránni. Ef þessu tvennu lýstur saman verður EES samningurinn að víkja.
"Þetta þýðir ekkert" / "Það breytist ekkert" / "Þetta er vonlaust hvort sem er". Þetta er viðkvæði margra Íslendinga þegar talið berst að spillingunni í stjórnkerfinu. Og þetta er rétt - meðan enginn lyftir fingri til að andæfa.
Landsvirkjun er í eign íslensku þjóðarinnar. Nú hefur afhjúpast trúnaðarbrestur gagnvart fjármálaráðherra og stjórn, sem úthýst hafa farsælum forstjóra Landsvirkjunar og fundað bak við luktar dyr eins og Landsvirkjun sé þeirra einkafyrirtæki.
Fyrir þá sem eru orðnir þreyttir á ástandinu og vilja vera meira en áhorfendur, þá er mögulega tækifæri til að hrista upp í þessu.
Hér er tillaga að undirskriftarlista sem hægt væri að setja inn á xn--sland-ysa.is - þ.e. ef menn gætu séð af hálfri mínútu til að skrá nafnið sitt og kennitölu:
"Áskorun um nýja stjórn Landsvirkjunar og óháða úttekt á stjórnarháttum
Við undirrituð skorum á fjármála- og efnahagsráðherra og ríkisstjórn Íslands að skipa nýja stjórn Landsvirkjunar og láta fara fram óháða úttekt á stjórnarháttum fyrirtækisins.
Landsvirkjun er í eigu íslensku þjóðarinnar. Almenningur á því rétt á gagnsæi um stjórnun fyrirtækisins og skýrri aðgreiningu milli pólitísks valds og daglegs rekstrar.
Fram hefur komið í fréttum að Hörður Arnarson hefur lýst áhyggjum af mögulegum pólitískum afskiptum og lagalegri áhættu. Hann gerði meðal annars athugasemdir við fundi ráðuneytis og stjórnar án þess að hann fengi fundarboð og bein afskipti einstakra stjórnarmanna af daglegum rekstri. Hann taldi jafnframt að samskiptin gætu haft afleiðingar gagnvart Eftirlitsstofnun EFTA, ESA.
Stjórnin var ósammála mati Harðar og aflaði lögfræðiálits vegna athugasemda hans. Þessi ágreiningur kallar á sjálfstæða skoðun og skýr svör.
Við krefjumst þess:
1. Að núverandi stjórn verði leyst frá störfum og ný stjórn skipuð, að uppfylltum lögbundnum skilyrðum.
2. Að óháðir aðilar rannsaki stjórnarhætti Landsvirkjunar, samskipti ráðuneytis, stjórnar og forstjóra og aðdraganda starfsloka Harðar.
3. Að niðurstöðurnar verði birtar opinberlega, að því marki sem lög heimila, ásamt tillögum að úrbótum.
Landsvirkjun er eign þjóðarinnar. Við krefjumst gagnsæis, ábyrgðar og faglegra stjórnarhátta."
Er þetta eitthvað sem Íslendingar gætu hugsað sér að skrifa undir? Það breytist a.m.k. ekkert meðan menn gera ekki neitt.
8
182
„Okkur hefur fjölgað mikið á stuttum tíma og við erum orðin fjölbreyttari þjóð. Fólksfjölgun hér hefur verið hraðari en í flestum öðrum löndum,“ segir doktor í afbrotabræði og dósent við HÍ í tengslum við frétt Mbl um fjölgun manndrápa hér á landi. Í framhaldi má spyrja: Fengu Íslendingar einhvern tímann að kjósa um þessa samfélagsbreytingu? Fengum við að kjósa um aukið vægi kynfræðslu í leikskólum og yngstu bekkjum grunnskóla? Fengum við að kjósa um hvort senda ætti milljarða af skattfé okkar til hergagnaframleiðenda til að kaupa manndrápstól sem notuð hafa verið í stríðsrekstri utan Nató? Fengum við að kjósa hvort borga ætti milljarða í botnlausa loftslagssjóði? Slíkar spurningar er löngu tímabært að ræða þegar stjórnmálamenn þjappa sér stöðugt nær hver öðrum, verða stöðugt feimnari við að ávarpa stærstu mál samtímans og útvista ákvarðanatöku til embættismanna, sem enginn hefur kosið til að taka pólitískar ákvarðarnir. Þegar stjórnmálamenn taka á sig sauðargæru embættismanna og gera ríkisstofnanir pólitískar umbreytist stjórnarfarið til hins verra því í stað lýðræðis erum við þá komin með óábyrgt sérfræðingaræði, þar sem ákvarðanir sem mestu skipta eru teknar bak við luktar dyr, án kynningar, án opinberrar umræðu og án ábyrgðar. Um þetta o.fl. ræddi ég í gær, sjá fyrstu athugasemd.
Allir sem komnir eru til vits og ára muna eftir Sjálfstæðisflokknum sem stórveldi. Frá lýðveldisstofnun til dagsins í dag hefur flokkurinn átt aðild að ríkisstjórn í um 60 ár. Þessi árangur þarf ekki að koma á óvart þegar litið er til þess að flokkurinn á bestu stefnuskrá sem nokkur stjórnmálaflokkur getur átt. Auk þess státaði hann af miklum mannauð, sem í tímans rás bar uppi málefnastarf flokksins. Flokkurinn varð til við samruna Íhaldsflokksins og Frjálslynda flokksins árið 1929 og sameinaði löngum það besta úr báðum hefðum, þar sem menn vildu standa vörð um það besta sem reynslan hafði fært okkur en vera þó tilbúnir til að hlusta á ný sjónarmið og stuðla að framförum á grundvelli gagnrýninnar hugsunar og kröftugra skoðanaskipta. Rauði þráðurinn var að halda ríkisvaldinu í skefjum, standa vörð um frelsi einstaklingsins til orðs og athafna, eiga frjáls viðskipti bæði til austurs og vesturs, verja menningararf Íslands og leggja rækt við tungumál okkar og sögu, reka sjálfstæða utanríkisstefnu sem stuðlaði að gagnkvæmum viðskiptum og skilningi, standa vörð um varnarsamning okkar við Bandaríkin, verja náttúruauðlindir Íslands og yfirráðarétt þjóðarinnar yfir lögum sínum, landinu og efnahagslögsögunni. Allt átti þetta samhljóm hjá um og yfir 40% þjóðarinnar. Sjálfstæðisflokkurinn var óvinnandi vígi. En eitthvað breyttist - og ég er ekki sannfærður um að breytingarnar hafi komið utan frá.
Eftir því sem ég hugsa meira um þetta finnst mér blasa við að Sjálfstæðisflokkurinn hafi verið yfirtekinn af vinstri mönnum sem komust til áhrifa undir fölsku flaggi: If you can´t beat them, join them. Þetta voru menn (og konur) sem kunnu að segja réttu setningarnar á réttu augnablikunum, enginn fundur var haldinn án þess að mæra "sjálfstæðisstefnuna" í orði en ekki verki, því þessi nýja tegund "sjálfstæðismanna" sýndi stefnunni enga hollustu í framkvæmd. Oft á tíðum var þetta snoppufrítt fólk sem var glæsilegt á velli og kunni svo vel að koma fyrir sig orði að landsfundarfulltrúar nánast táruðust undir þrautþjálfaðri ræðusnilldinni og sýndu þakklæti með standandi lófataki.
Þannig gerðist það að gömlu, góðu Sjálfstæðismennirnir misstu flokkinn sinn í hendurnar á fólki sem var í raun aldrei neitt Sjálfstæðisfólk. Útkomuna þekkja allir: Sjálfstæðisflokkurinn slitnaði af rótinni og fór að innleiða stefnumál sem traustustu stuðningsmenn flokksins hefðu aldrei kosið sjálfir: Hærri skatta, fleiri ríkisstofnanir, meira ríkiseftirlit, undirgefni gagnvart ESB og stuðningur við frumvarpið um bókun 35, samstarf við róttæka vinstri menn í 7 ára ríkisstjórn undir forystu Katrínar Jakobsdóttur, stuðningur við vopnakaup og stríðsrekstur, lokun sendiráðs í Rússlandi, opin landamæri o.s.frv. Allt hefur þetta orðið til þess að veikja Sjálfstæðisflokkinn, því til hvers að kjósa flokk (og starfa innan flokks) sem stýrir stöðugt til vinstri og hefur látið hrekja sig af grunninum? Ég hef sagt það áður og segi það aftur: Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn.
Guðrún Hafsteinsdóttir villti ekki á sér heimildir til að verða formaður flokksins og hefur góðan vilja til að endurreisa flokkinn á réttum grunni, en þar þarf hún væntanlega fyrr eða síðar að glíma við hulduherinn sem hreiðrað hefur um sig svo víða, eins og að framan er lýst. Meðal þess sem hún gæti gert til að styrkja stöðuna væri að ráða til sín traustan hugmyndafræðing, Hjört J. Guðmundsson, því Hjörtur hefur nú verið settur í "Berufsverbot" hjá íslenska ríkinu, að Austur-Þýskri fyrirmynd.
Að beiðni Alþingis hef ég sent utanríkismálanefnd umsögn um frumvarpið um bókun 35. Í umsögninni er fjallað um áhrif frumvarpsins á Alþingi, íslenskt dómsvald og íslenska stjórnskipun. Sérstaklega fjalla ég um skyldur og umboð Alþingismanna sem unnið hafa drengskaparheit að stjórnarskránni. Kaflinn um Alþingi er eftirfarandi:
,,Samkvæmt 2. gr. stjskr. fer Alþingi með löggjafarvaldið ásamt forseta lýðveldisins. Frá gildistöku EES samningsins hefur Alþingi í vaxandi mæli verið gert að afgreiðslustofnun fyrir reglur sem samdar eru erlendis. Með auknum straumi og auknu umfangi hefur þetta í reynd þýtt að völdin til að semja og setja reglurnar hafa færst úr landi. Hlutskipti Alþingis hefur í auknum mæli orðið það að standa við endann á færibandi sem á upphaf sitt í Brussel og innleiða reglur sem þaðan berast, án viðhlítandi efnislegrar umræðu um innihaldið. Með frumvarpinu um bókun 35 er miðað að því að festa þessa stjórnskipulegu öfugþróun í sessi með viðurkenningu Alþingis á almennum forgangi EES réttar. Alþingi myndi með þessu gengisfella sjálft sig og taka sér það aðalhlutverk að uppfylla formskilyrði lagasetningar, nánar tiltekið um þingnefndarmeðferð, umræðu og atkvæðagreiðslu á Alþingi en árétta um leið að heimildin til að breyta efni reglnanna væri í reynd horfin, því efni EES-reglnanna er ákvarðað í erlendum nefndum og ráðum. Eftir sæti þá Alþingi sem ekki hefði neitt mótunarhlutverk við lagasetningu á þeim réttarsviðum sem hér um ræðir annað en að staðfesta, tefja eða blýhúða reglurnar. Alþingi gæti m.ö.o. ekki varið íslenska hagsmuni án þess að brjóta gegn þeirri meginskuldbindingu sem frumvarpinu er ætlað að uppfylla. Fyrirvari þess efnis að Alþingi gæti að formi til „mælt fyrir um annað“ er því þýðingarlaus og gefur til kynna svigrúm sem Alþingi gæti í raun ekki nýtt án alvarlegra afleiðinga vegna forgangsreglunnar sem Alþingi væri þá sjálft búið að viðurkenna. Meginatriðið, nú sem fyrr, er að Alþingi sjálft sinni löggjafarhlutverki sínu samkvæmt stjórnarskránni en framselji það ekki öðrum."
Umsögnina í heild má finna á vef Alþingis og á bloggi AÞJ.
2
76
Vinstra fólkið er blindað af fórnarlambahugmyndafræði sem skilgreinir múhameðstrúarmenn sem minnihlutahóp. Minnihlutahópum leyfist meira en öðrum og því þorir "góða fólkið" ekki gagnrýna meðferð íslamistanna á konum, hommum o.fl. Af þessu leiðir að hver sem vogar sér að gera athugasemdir við stofnun sharia-dómstóla eða grimmd gagnvart þeim sem ganga af múhameðstrú gerist sekur um "íslamafóbíu". Þetta varpar ljósi á hvers vegna femínistar og LBGT hópar flagga fána þeirra sem vilja henda þannig fólki fram af háhýsum í mið-austurlöndum.
Þetta skýrir einnig aðrar þversagnir, sbr. t.d. andmæli við manndrápum á Gaza en kaup á drápstólum til að halda áfram manndrápum í Úkraínu; háfleygt tal um mikilvægi tjáningarfelsis um leið og settar eru reglur um aukna ritskoðun, vernd gegn "hatri" o.fl. sem grefur undan opinni þjóðfélagsumræðu; fjölbreytileikanum á að fagna í öllu, nema að vísu ekki fjölbreytni skoðana; kolefnisjafna á Jón á bolnum og Gunnu í Breiðholtinu, en ekki stjórnmálamenn, fræga fólkið og forstjórana á einkaflugvélunum; allir eiga að njóta jafnréttis, nema þörf sé á mismuna eftir hópum í nafni jafnréttis;
þegar verið er að beita "jákvæðri mismunun" skiptir líffræðilegt kyn öllu máli, en á sama tíma segir sama fólk að kyn sé aðeins tilfinning / upplifun; mikið talað um dýravelferð og hvers kyns dýraníð, annað en það sem viðgengst í iðnaðarbúskap; allir líkamar eru fallegir og engan má gagnrýna fyrir holdafar, á sama tíma og verið er að skera upp herör gegn offitu heilbrigðisgeiranum.
Góðar stundir.
34
Kæri (skyldu)áskrifandi RÚV.
Ef þú ert einn af þeim sem vilt fá "sem mest fyrir peningana" sem ríkisstjórnin skyldar þig til að borga í botnlausan ríkissjóð undir merkjum ríkisstjórnarútvarpsins, þá hefurðu vafalaust hlustað samviskusamlega á útvarps- og sjónvarpsfréttir síðustu misseri, auk þess að reyna samviskusamlega að hlæja að "skemmtiþætti" Gísla Marteins. Jafnvel þótt þú hafi komist svona langt án þess að lækka greindarvísitöluna niður fyrir skaðleg mörk, þá treysti ég mér þó til að staðhæfa að allir þessir þættir hafa ekki upplýst þig um hversu bágborið ástandið er í Frakklandi og ESB. Óábyrgir stjórnmálamenn hafa "keypt" sig til áhrifa í Frakklandi með því að lofa styrkjum, bótum og lífeyrisgreiðslum úr tómum ríkiskassa - og nú er komið að skuldadögum, sem kristallast í óeirðum þeirra sem hafa viljað gera ríkið að mömmu sinni og heimta meiri peninga (úr vösum annarra). Þrátt fyrir að ég hafi kerfisbundið sneitt framhjá öllum fréttum RÚV síðustu ár leyfi ég mér að fullyrða að RÚV hefur ekki sagt áskrifendum sínum frá því að Christian Sewing, æðsti yfirmaður Deutsche Bank, og raunar fleiri þýskir bankamenn, hafa lýst miklum áhyggjum af framtíð Evrunnar meðan skuldasöfnun Frakklands heldur áfram, því ef Frakkar lenda í greiðsluþroti og aðrar aðildarþjóðir neita að borga reikningana þá mun Evran riða til falls og ESB sömuleiðis. Rúv hefur örugglega ekki heldur upplýst "áskrifendur" sína um það að heimurinn mun ekki farast ef og þegar ESB mun hrynja innan frá. Evrópuríki munu þá halda áfram að eiga viðskipti og munu geta tekið sjálfstæðar ákvarðanir um það hvort / að hvaða marki beri að verja innlendan iðnað með verndartollum. Slíkar ákvarðanir verða auðveldari þegar Evrópuþjóðir verða lausar undan því að fjármagna rándýrt og íþyngjandi stjórnsýslubákn í Brussel og skattlausa pólitíska yfirstétt sem ber enga lýðræðislega ábyrgð.
Nú líður vart sá dagur að ekki birtist fréttir af íþróttamönnum sem fallnir eru frá í blóma lífsins eftir að hafa varið bestu árum sínum í að efla sína líkamlegu hreysti. Ég er ekki fæddur í gær, en minnist þess ekki að önnur eins hrina andláts- og veikindafrétta af ungu fólki hafi gengið yfir okkur á fyrri stigum. Það er eins og eitthvað hafi breyst frá og með árinu 2021. Hvað gæti það hafa verið?
Af því að ég á mörg þúsund vini á Internetinu sem sumum finnst gott að kalla mig öllum illum nöfnum, þá vil ég nota þennan vettvang til að deila því að ég fékk martröð í nótt: Út um allan bæ var verið að reisa vegatálma og ég þurfti rafræn skilríki til að komast í gegnum öryggishlið opinbers bókasafns.
Þótt þetta hafi í sjálfu sér verið ógnvekjandi draumur var ekki mikið skárra að vakna og hugsa til þess að öll tæknin er nú þegar til staðar og að ófyrirleitnir valdhafar gætu, hvenær sem er, skellt samfélaginu í lás með kröfu um rafræn skilríki að kínverskri fyrirmynd. Og það skelfilegasta af öllu er að sennilega myndu fæstir andmæla - og að þeir sem það myndu gera yrðu kallaðir ... öllum illum nöfnum! Tónninn hefur nefnilega verið sleginn. Við vitum nokkurn veginn hversu mikið þarf til að berja alla mótstöðu úr fólki: Þéttan, daglegan "fréttapakka" um utanaðkomandi ógn, jafnvel leiknar upptökur frá Kína þar sem fólk dettur niður dautt og nokkra innlenda vísindamenn sem spá heimsenda (nema allir fylgi ráðleggingum "vísindanna"). Í "kófinu" kom nefnilega í ljós að meirihluti almennings er mjög valdhlýðinn og auðtrúa. Þetta er fólkið sem var tilbúið til að láta sprauta sig ítrekað með óþekktri efnablöndu af því "sérfræðingarnir í sjónvarpinu" vildu það. Næstu 20% má fá til að hoppa á vagninn með því að lofa aðgengi að flugvöllum, veitingastöðum, tónleikum, leikhúsum o.fl. Þarnæstu 20% hlýða ef þau sannfærast um að atvinna þeirra sé í húfi. Síðustu 5-10% er fólk sem hugsar sjálfstætt og lætur hvorki múta sér né hóta sér. Þetta er eini hópurinn sem getur staðið í vegi fyrir því að samfélagið umbreytist í stafrænt fangelsi á næstu árum, þar sem við þurfum leyfi stjórnvalda til að mega ferðast milli staða og nýta almenna þjónustu.
Valdamesti maður landsins, handvalinn fjármálaráðherra sem plantað var í embættið af klíkunni sem opinberlega hefur komið fram að stjórni Viðreisn, hefur játað, eftir að hafa tafið svör í meira en eitt ár, að hann geti ekki útskýrt hvað orðið hefur um milljarða sem sendir hafa verið úr landi (til "the military industrial complex") undir yfirskini öryggis- og varnarmála, á meðan skorið hefur verið niður í löggæslu hér innanlands. Hann getur ekki útskýrt hvaða vopn voru keypt eða í hvaða vösum peningarnir höfnuðu. Í þessu birtist vanræksla á grundvallarskyldu ríkisvaldsins gagnvart skattgreiðendum. Ríkið krefst þess fólk og fyrirtæki geti útskýrt hverja einustu krónu og vill fá skýringar á peningum sem færðir eru á milli landa, að viðlögðum refsingum fyrir bókhaldsbrot og peningaþvætti ef skýringar skortir. Ríkisvaldið á ekki að búa við aðrar kröfur. Á "sérfræðivakt" handvalda fjármálaráðherrans hefur ekki bara verið þrengt að lögreglunni og landhelgisgæslunni, heldur líka að margs konar annarri grunnþjónustu á meðan milljarðar eru sendir úr landi án þess að vitað sé hvað varð um þá. Lágmarkskrafa skattgreiðenda er sú að gagnsæi ríki um meðferð þeirra peninga sem kreistir eru út úr vinnandi fólki.
Enginn vísindamaður sem vill standa undir nafni trúir því að hann hafi höndlað sannleikann eða fundið lokasvar um nokkurt einasta álitamál. Gagnrýnin hugsun krefst efasemda um viðtekna þekkingu og hugrekkis til að skora almennt viðurkennda afstöðu á hólm þegar nauðsyn krefst. Óþarft er að taka fram að svona hugarfar er ekki valdhöfum þóknanlegt. Þú átt að hlýða og gera eins og þér er sagt (borga stöðugt hærri skatta, gefa skýrslu um hve langt þú keyrir og borga gjald af hverjum kílómetra, láta sprauta þig ítrekað, ganga um með grímu, standa í 2m fjarlægð). Í stað þess að svara málefnalegri gagnrýni með rökum eru efasemdir kæfðar með ásökunum um viðkomandi hljóti að vera and-félagslegur, vilji ekki taka ábyrgð, vilji ekki vera "í liðinu", sýni ekki samstöðu o.s.frv. Slík gervirök má nota til að keyra fleiri óvinsæl mál í gegn, svo sem þrengingu gatna, borgarlínu, forgang erlendra lagareglna o.fl. Frammi fyrir vaxandi valdboðsáherslum stjórnvalda má hver og einn minna sig að það er hún sjálf / hann sjálfur sem á að hafa ráðstöfunarrétt yfir eigin fjármunum, tíma og orku - og að ríkið á hvorki líkama okkar né sál.
2
74
Margur verður af aurum api segir hin forna alþýðuspeki. Júdas seldi sálu sína fyrir 30 silfurpeninga. Egill Skallagrímsson vildi dreifa silfrinu um Þingvelli til að sjá hvort / hvernig þingfulltrúar myndu henda frá sér æðstu hugsjónum, prúðmennsku og drengskap í slagsmálum um örfáa silfurpeninga. Nú vill ESB leika sama leikinn með alþingismenn okkar. Í skiptum fyrir "aðgengi að markaði" (sem Íslendingar hafa raunar tvisvar samið um, fyrst með EFTA 1970 og svo EES 1993) vill ESB ráða lögum (og lofum) á Íslandi. Þingmenn sem hollari eru ESB í verki en föðurlandi sínu munu reyna að fela sig á bakvið að "Alþingi geti ákveðið annað" þótt þeir hafi í sumar sjálfir þvertekið fyrir Ísland ætti nokkuð neitunarvald innan EES því þá myndi samningurinn "fara í uppnám". Nöturlegt er til þess að hugsa að óþjóðhollir og sögulega ólæsir alþingismenn hyggist ofurselja Ísland ESB fyrir silfurpeninga á árinu 2026.
2
102
Ég er farinn að líta á frumvarpið um bókun 35 sem skilgreinandi um það hvort við Íslendingar ætlum að búa við lýðveldi (þar sem valdið stafar frá þjóðinni og lög eru sett að undangenginni umræðu kjörinna þingfulltrúa okkar) eða undir erlendu sérfræðingaveldi (þar sem lögin eru póstsend), því eftir umræðuna um þriðja orkupakkann er ljóst að íslenskir ESB sinnar telja að Íslendingum beri að lúta vilja Brussel-veldisins í stóru sem smáu og að samningsbundið neitunarvald Íslands sé í raun ekki til staðar. Af því leiðir að enginn á að láta blekkjast af málflutningi ESB-manna nú þegar þeir vísa til þess að Alþingi geti ,,mælt fyrir um annað" eftir að hafa innleitt almenna lagareglu um forgang EES réttar fram yfir lög frá Alþingi.
Við sem styðjum stjórnarskrána og lýðveldið eigum að snúa vörn í sókn og nota orð ESB-manna gegn þeim með þvi að spyrja t.d.: Viltu ekki ,,kíkja í pakkann" frá EFTA dómstólnum? Viltu ekki sjá hverju vörn Íslands gæti skilað?
4
136












