Hvað ætli sé hátt hlutfall erlendra ökumanna sem greiðir fyrir ferðir yfir Hornafjarðarfljót? Myndi áætla að það væri í versta falli 10% en í besta falli 25%. Hvernig er hægt að byggja brú fyrir marga milljarða en geta ekki búið þannig um hnútana að fólk geti greitt án vandkvæða?
United eiga að ráða næsta þjálfara til bráðabirgða og hafa hann bara sem bráðabirgðastjóra þar til þeir vinna titil, reka hann svo og ráða hann aftur - til bráðabirgða…
Það eru brenglaðir viðskiptahættir að reyna í krafti stærðar að koma í veg fyrir að neytendur fái vörur/þjónustu sem það vill og verslun/bar/þjónustuaðili vill bjóða meðfram þinni vöru…
Vínbúðirnar ættu að opna stælabjóravínbúðir og bjóða öllum brugghúsum landsins að koma þangað með vörurnar sínar. Hugsa reyndar að flestir bjórarnir myndu renna út í hillunum 🤣
Er bannað að hafa sturtur og klósett í þessum gusu óþrifnaði? Er það eitthvað sem eyðileggur gæðin eða gerir þessa upplifun verri? Það er að segja að þrífa sig að þessum athöfnum loknum…
Ég myndi ekki drekka stælabjór þó hann væri eini bjórinn í boði í öllum vínbúðum landsins. Drekk hann ekki einu sinni þó hann sé gefins.
Hefur einhver átt aðra eins frumraun í meistaraflokki 16 ára?!? Wow 🔥
visir.is/g/20262945948d/16-a…
Bílaleigur eiga að bera ábyrgð á innheimtu allra mögulegra gjalda og skatta, bílaleigur eiga að bera ábyrgð á hraðasektum skv nýjustu frumvarpsdrögum umferðarlaga og svo eiga bílaleigur að bera ábyrgð á orkuskiptum ella vera úthúðaðar sem dragbítur… 🫠
visir.is/g/20262938158d/bila…
Innlegg í kjaramál Icelandair. Hvað með að félagið bjóði viðsemjendum sínum hlut í félaginu í stað launahækkana? Eru ekki allir starfsmenn sólgnir í hlut í félaginu og tilbúnir að hjálpa því að rísa á ný og fá svo að njóta afrakstursins þegar félagið hefur sig til flugs?
Þetta voru skilaboðin hjá þjónustuveitu Icelandair kl 18:10. Um 3 klst síðar var ég kominn í nr 35 í röðinni, síðan endurhlóð vefsíðan sig einhverja hluta vegna og ég datt út… Hvað tók við? Spjallmenni að spyrja mig hvernig mætti aðstoða 🤣🤣
Boðað verkfall flugvirkja strax farið að hafa neikvæð áhrif. Viðskiptavinir okkar hjá Blue farnir að hafa samband með áhyggjur af flugi og vilja afbóka eða færa til flug. Þetta mun bara aukast næstu daga og líklega kosta fyrirtækið talsverðar upphæðir ef ekki verður samið eða…😏
Allar starfsgreinar sem innihalda orðið “flug” í starfsheiti sínu eiga ekki að hafa verkfallsrétt nema aðilar fái boð um kjaraskerðingu…
Það er orðið áhættusamara að kaupa flugmiða á Íslandi vegna hættu á að einhver flugstétt fari í verkfall en að bóka golfhring vegna hættu á að veðrið verði verra en spár gera ráð fyrir…
Þarf ekkert að ræða þessa smáaura sem eru í verðlaunafé í bikarúrslitum í boltaíþróttum? Milljón… Er það mánaðalaun eins leikmanns? 😅

