Hvaða fólk er þetta? frænka mín er líka að fara eiga barn, ekki er skrifað um það í blöðin.
mbl.is/smartland/fjolskyldan…
Var í Primark. Kófsveittur að magn kaupa fast-fashion. Finnst alltaf eins og það hafi enginn keypt eins mikið. Rogast heim með þetta. Þegar heim komið eru þetta 1 stk buxur og tvær skyrtur.
Í gær var innslag um mig í Landanum á RÚV þar sem þau komu í heimsókn á vinnustofuna mína. Við ræddum listina og það sem brennur mest á mér þessa dagana.
Vonandi getur mitt starf hvatt fleiri til sköpunar – því listin lifir í samfélaginu
ruv.is/sjonvarp/spila/landin…
Mér finnst geggjað hvað Jóhann Páll Jóhannsson er fjölhæfur. Vissi að hann hafði samið lagið "hvar er Guðmundur?" enn þetta er annað level.
Látum það vera að fyrrum frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins segi að "það var ákvörðun tekin að fara í prófkjör Sjálfstæðisf...ööö Samfylkingarinnar" enn að skjóta svo inn slagorði Sjálfstæðisflokksins frá síðustu kosningum "borg sem virkar" beint inn í kjölfarið er pínu fyndið.
Sem starfandi byggingarfulltrúi þá hef ég tekið eftir því að almenningur leggur mikið upp úr gæði bygginga alveg þar til það fær kannski ranga brunahurð sem uppfyllir ekki íslenska staðla í húsið sem það er að byggja eða eitthvað slíkt. Þá geta prinsippin verið fljót að fjúka.
Minni á jólasýninguna mína á vinnustofu minni í Fish and chips, Reyðarfirði n.k. laugardag frá 16 til 22. Léttar veitingar, hlakka til að sjá ykkur öll
austurfrett.is/frettir/malve…
Ég minni á opna vinnustofu/sýninguna mína Blautar myndir 13 des n.k. í Fish and chips, Reyðarfirði. Vinnustofan er opin frá 16 til 22. Nóg af nýjum myndum, lauf léttar veitingar í boði. Gluggar og er 100x150cm olía á striga. Þetta og meira á albeck.is
Ég hef verið að hugsa um að vera með opna vinnustofu fyrir jól. Það hefur ekki gengið nógu vel að safna upp myndum fyrir sýninguna þar sem þær yfirgefa vinnustofuna ansi hratt. Það er allt í lagi, er duglegur að mála. Þessi mynd heitir Krossgötur og er meter x meter.
Frábært framtak hjá menningarstofu Fjarðabyggðar að fá Stefán Óla (@mottandi) til að mála tankana á Reyðarfirði.
ruv.is/frettir/innlent/2025-…





