Donald Trump ætlaði að stilla til friðar í Úkraínu og á Gaza en stofnaði til styrjaldar í staðinn. Repúblikanar súpa nú seyðið af því.
Ólukka ríkisstjórnarflokkanna | Harmageddon | S04E41
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á brotkast.is/askrift/
Komið var fram við Helgu líkt og hún væri illskan uppmáluð eftir að hún tjáði sig um transhugmyndir í barnaskólum.
#brotkast #ísland #iceland #trans #fjölbreytni
Svona byggirðu upp fjárhagslegt frelsi | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E65
Georg Lúðvíksson, frumkvöðull og stofnandi Meniga og Spesíu, er gestur Frosta Logasonar í Spjallinu að þessu sinni.
Hvernig getur venjulegt fólk byggt upp fjárhagslegt frelsi? Er skynsamlegt að geyma
Gays for Gaza er eins og Chickens for KFC. Hinsegin fólk ætti frekar að veifa ísraelska fánanum en þeim palestínska. Komdu í áskrift og sjáðu Teit Atlason á Brotkast.is
#brotkast #ísland #stjórnmál #iceland #reykjavik
Helga Dögg Sverrisdóttir var látin finna fyrir því þegar hún birti skoðanagrein í Morgunblaðinu. Brotkast.is
#brotkast #ísland #iceland #einelti #samtökin78
Franska stelpan sem grét þegar óeirðaseggir rústuðu búðinni hennar er andlit Evrópu í dag. Komdu í áskrift og sjáðu Teit Atlason á Brotkast.is
#brotkast #ísland #stjórnmál #iceland #reykjavik
Velferðarpeningar sem enda hjá hryðjuverkasamtökunum Al-Shabaab. Komdu í áskrift og sjáðu Teit Atlason á Brotkast.is
#brotkast #ísland #stjórnmál #iceland #reykjavik
Leiðtogar Hamas eru jafn ríkir og Trump. Komdu í áskrift og sjáðu Teit Atlason á Brotkast.is
#brotkast #ísland #stjórnmál #iceland #reykjavik
Það þarf að setja grensur á velferðarkerfin. Komdu í áskrift og sjáðu Teit Atlason á Brotkast.is
#brotkast #ísland #stjórnmál #iceland #reykjavik
Hin fullkomna sturlun vestrænnar menningar. Queers for Palestine. Teitur Atla í viðtali á Brotkast.is
#brotkast #ísland #stjórnmál #iceland #europe
Okkur er sagt að Íslendingar vinni minna heldur en innflytjendur. Teitur Atlason á Brotkast.is
@frostiloga
Er fjölmenningin að bresta? | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E63
Frosti Logason og Teitur Atlason ræða óeirðir í Evrópu og velta fyrir sér hvað liggi að baki þeim. Þeir ræða mótmælamenningu, skemmdarverk og innflytjendastefnu, en leggja ólíkt mat á stöðu innviða og mögulegar ástæður óánægjunnar.
Í umræðunni kemur fram hugmynd um að stærð innflytjendahópa geti haft áhrif á aðlögun og myndun hliðarsamfélaga. Þeir fjalla einnig um það sem þeir kalla „suicidal empathy“ og ræða hvernig pólitísk sannfæring og sjálfsmynd geti gert fólki erfitt fyrir að endurskoða skoðanir sínar.
Þá ræða þeir meint auðæfi leiðtoga Hamas og búsetu þeirra erlendis. Þeir víkja einnig að atvinnuþátttöku innflytjenda á Íslandi, gagnrýna framsetningu tölfræði og kalla eftir nánari greiningu og stuðningi við hópa sem standa höllum fæti.
Að lokum ræða þeir sameiginleg samfélagsgildi og hugtakið „civil religion“. Teitur leggur áherslu á að fólk með ólíkan menningarbakgrunn þurfi að geta sameinast um gildi þess samfélags sem það býr í.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á brotkast.is/askrift/
@FrostiLoga
Tjáningarfrelsi á útsölu | Harmageddon | S04E40
Hér á Íslandi er til fólk í áhrifastöðum sem vill henda þeim í fangelsi sem tjá sig um áhyggjur sínar af þróun útlendingamála. Það er ekkert nýtt að róttæklingar vilji misnota lög í pólitískum tilgangi en það er verra þegar kjörnir fulltrúar á Alþingi eru komnir þangað.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á brotkast.is/askrift/
@frostiloga
Frakkland er fallið | Harmageddon | S04E39
Fjölmiðlar hér á landi sem erlendis reyna enn að selja okkur þá hugmynd að óeirðirnar í Frakklandi séu fyrst og fremst mótmæli framhaldskólanema. Að loftslagsbreytingar séu að gera nemendum svo erfitt fyrir og ekki sé hægt að taka samræmd próf í svo miklum hita. Þess vegna sé verið að brenna niður opinberar byggingar, verslanir og bíla. En nú hefur forseti Frakklands reyndar gefið það út að skemmdarvargarnir séu fyrst og fremst öfgasinnaðir vinstrihópar sem vilja knésetja franska lýðveldið.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á brotkast.is/askrift/
@FrostiLoga
Jóhannes Loftsson - Þetta gæti verið mun verra en við höldum! | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E62
Geta afleiðingar COVID-bólusetninganna verið að koma fram fyrst núna, fimm árum síðar? Og hvers vegna hefur ekki farið fram ítarlegra uppgjör á sóttvarnaraðgerðum og ákvörðunum heilbrigðisyfirvalda?
Jóhannes Loftsson, verkfræðingur og stjórnarmaður í Heilsuvon, er gestur Frosta Logasonar í Spjallinu að þessu sinni. Jóhannes var áberandi í gagnrýni á sóttvarnaraðgerðir á COVID-tímanum og hefur undanfarin ár beitt sér fyrir því að vekja athygli á fólki sem telur sig hafa orðið fyrir alvarlegum aukaverkunum bóluefna.
Í viðtalinu fer Jóhannes yfir niðurstöður könnunar sem Heilsuvon lét Maskínu framkvæma og telur benda til þess að fjöldi Íslendinga hafi orðið fyrir alvarlegum skaða í kjölfar bólusetninga. Hann gagnrýnir íslensk heilbrigðisyfirvöld fyrir að hafa ekki rannsakað mögulegar langtímaafleiðingar nægilega vel og varar við því að alvarleg heilsufarsvandamál kunni að koma fram mörgum árum eftir bólusetningar.
Rætt er um möguleg áhrif á hjarta- og æðakerfi, blóðtappa, krabbamein, frjósemi og aðrar heilsufarsbreytingar sem Jóhannes telur ástæðu til að rannsaka betur. Hann setur jafnframt fram harða gagnrýni á lyfjaiðnaðinn, eftirlitsstofnanir og það hvernig brugðist var við þeim sem efuðust um öryggi bóluefnanna.
Umræðan berst einnig að ivermektíni og öðrum lyfjum sem Jóhannes telur að hafi verið ýtt til hliðar á COVID-tímanum, mögulegum hagsmunaárekstrum innan heilbrigðiskerfisins og dómsmáli í Hollandi þar sem Bill Gates og fleiri áhrifamenn eru meðal stefndra vegna meintra afleiðinga bólusetninga.
Í síðari hluta þáttarins er sjónum beint að Íslandi, ábyrgð stjórnvalda, mögulegum bótarétti þeirra sem telja sig hafa orðið fyrir bóluefnaskaða og nýjum sóttvarnalögum. Jóhannes lýsir sérstökum áhyggjum af því að löggjöfin veiti stjórnvöldum of víðtækar heimildir til inngripa í næsta heilbrigðisneyðarástandi.
Höfum við lært eitthvað af COVID-tímanum eða er hætta á að sömu mistökin verði endurtekin?
Ítarlegt og gagnrýnið samtal um heilbrigðisyfirvöld, vísindi, hagsmuni lyfjafyrirtækja, einstaklingsfrelsi og þá ábyrgð sem fylgir ákvörðunum sem hafa áhrif á heila þjóð.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á brotkast.is/askrift/
@FrostiLoga
Ofbeldi og eyðilegging | Harmageddon | S04E38
Óeirðirnar í Frakklandi ættu að vera víti til varnaðar. Óvarleg fjölmenningar- og innflytjendastefna getur reynst vestrænum samfélögum stórhættuleg. Vonandi eru einhverjir loksins að vakna. En svo eru auðvitað þeir vinstrimenn sem hafa slíkt horn í síðu vestrænna gilda að þeir virðast helst fagna ástandinu. Og láta sig dreyma um að íslensk ungmenni taki sér óeirðaseggina til fyrirmyndar. Við fjöllum um þetta og miklu meira í Harmageddon þætti dagsins.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á brotkast.is/askrift/
@FrostiLoga
Reynir Grétarsson - Frá milljarðaviðskiptum til gagnslausra hugsana | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E61
Reynir Grétarsson er einn af athyglisverðari frumkvöðlum og fjárfestum Íslands. Hann var aðeins 24 ára þegar hann stofnaði ásamt félögum sínum fyrirtækið Lánstraust, sem síðar varð Creditinfo, og átti eftir að vaxa langt út fyrir landsteinana.
Í þessu viðtali við Frosta Logason fer Reynir yfir ævintýralegt lífshlaup sitt, allt frá fyrstu skrefunum í íslensku viðskiptalífi á tíunda áratugnum til uppbyggingar alþjóðlegs fyrirtækis. Hann segir frá því hvernig þrír ungir menn hófu rekstur með aðeins tvær milljónir króna, mættu tortryggni bankakerfisins og þurftu að sannfæra valdamikla menn um að þeir væru að gera hlutina á rangan hátt.
En velgengni í viðskiptum tryggir ekki endilega hamingju. Reynir ræðir af mikilli einlægni um tímabil þar sem hann var afar óhamingjusamur þrátt fyrir mikinn árangur, um samband sitt við metnað, peninga og viðurkenningu annarra og hvernig viðhorf hans til lífsins hafa breyst með árunum.
Í lok viðtalsins ræðir Reynir nýútkomna bók sína, Bókasafn gagnslausra hugsana, þar sem hann fjallar um þær neikvæðu og oft tilgangslausu hugsanir sem geta tekið yfir huga okkar. Hann segir frá því hvernig hugmyndin að bókinni kviknaði, meðal annars í óvenjulegri reynslu af hugvíkkandi efnum, og hvers vegna hann telur mikilvægt að læra að horfa á hugsanir okkar án þess að láta þær stjórna lífinu.
Þetta er einlægt og áhugavert samtal um frumkvöðlastarf, áhættu, velgengni, óhamingju, sjálfsþekkingu og leitina að því sem raunverulega skiptir máli í lífinu.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á brotkast.is/askrift/
@FrostiLoga
Kolbeinn Stefánsson: Þegar pólitík ræður vísindunum – og fjölmiðlar gleypa allt | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E60
Hvað gerist þegar pólitísk hugmyndafræði fær að ráða för í vísindum og fjölmiðlar birta niðurstöður rannsókna án þess að spyrja gagnrýninna spurninga?
Kolbeinn Stefánsson, dósent við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands, er gestur Frosta Logasonar í Spjallinu að þessu sinni.
Tilefnið er umdeild skýrsla hugveitunnar Equimundo um viðhorf íslenskra karla til jafnréttis, karlmennsku og ofbeldis. Niðurstöðurnar vöktu mikla athygli í íslenskum fjölmiðlum en sættu síðar harðri gagnrýni félagsvísindamanna vegna alvarlegra annmarka á rannsókninni.
Kolbeinn gagnrýnir bæði rannsóknina og hvernig fjölmiðlar tóku niðurstöðum hennar. Hann telur málið afhjúpa mun stærra vandamál: Hversu auðvelt sé að koma vafasömum rannsóknum á framfæri ef niðurstöðurnar falla að ríkjandi pólitískri orðræðu.
Umræðan víkkar síðan út í gagnrýna skoðun á stöðu félagsvísinda, kynjafræði og pólitískrar hugmyndafræði innan háskólasamfélagsins. Þeir Frosti rifja meðal annars upp hið fræga Grievance Studies Affair, þar sem þrír fræðimenn komu tilbúnum og fáránlegum rannsóknargreinum í gegnum ritrýni fræðitímarita.
Kolbeinn ræðir mikilvægi vísindalegrar aðferðafræði, hættuna sem felst í því að pólitískar skoðanir ráði niðurstöðum rannsókna og hvers vegna fræðimenn verði að vera tilbúnir að gagnrýna hver annan, jafnvel þegar það veldur óþægindum.
Einnig er rætt um þá neikvæðu mynd sem gjarnan er dregin upp af íslenskum körlum og hvernig sú mynd samræmist öðrum rannsóknum á jafnréttisviðhorfum.
Er háskólasamfélagið að sinna hlutverki sínu sem vettvangur frjálsrar þekkingarleitar eða hefur pólitísk hugmyndafræði fengið of mikið vægi?
Um þetta og margt fleira í nýjasta þætti Spjallsins með Frosta Logasyni.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á brotkast.is/askrift/
@FrostiLoga
