Verði nýtt frumvarp um náttúru- og innviðagjald að lögum verður Ísland eina Norðurlandið þar sem ríkið leggur sérstakt gjald á erlenda ferðamenn fyrir aðgang að náttúruperlum 💸🏔️
Gjaldið á Gullna hringinn:
• bætist ofan á gistináttaskatt, innviðagjald á skemmtiferðaskip, kílómetragjald, varaflugvallagjald og fyrirhugaða hækkun VSK á baðlón
• kallar á nýtt innheimtu- og eftirlitskerfi hjá Ferðamálastofu
• varðar 60.000 kr. sekt ef 3.000–4.500 kr. gjaldið er ekki greitt, án tillits til ásetnings
• rennur beint í ríkissjóð án tengsla við svæðið og kemur í stað bílastæðagjalda sem nýttust til uppbyggingar og rekstrar.
Einfaldari leiðir eru færar. Umsögn Viðskiptaráðs:
vi.is/umsagnir/gjaldtaka-a-g…
Hvernig stóð ríkisstjórnin sig í vetur? 🧵
Viðskiptaráð hefur gert úttekt á efnahagslegum áhrifum þingmála ríkisstjórnarinnar á liðnum þingvetri. Samtals höfðu 52 mál markverð efnahagsleg áhrif og eru heildaráhrif þeirra nokkuð neikvæð.
♻️Sorpþjónusta hefur hækkað tvöfalt umfram verðlag og mest af kostnaðarliðum sem tengjast rekstri húsnæðis. Gæði þjónustunnar fylgja þó ekki alltaf eftir þrátt fyrir örar tækniframfarir sem hafa skapað aðstæður fyrir fjölbreyttari lausnir og meiri samkeppni.🧵
„Kvenréttindi snúast nefnilega ekki um að konur fái að gera það sem þær langar, heldur að konur geri það sem Kvenréttindafélag Íslands telur þeim fyrir bestu.“
visir.is/g/20252808168d
5
97
Eftir hálfs árs bið sviptir ríkisstjórnin loks hulunni af fyrstu hagræðingarverkefnunum
Hver eru efst á blaði? Jú, að gera ríkisstjórnina pappírslausa, að hætta að skutla forseta milli staða til að skrifa undir pappíra og "aukin samhæfing" án skýringa.
Bless fjárlagahalli🥳
Vorþingið var skrautlegt. Í nýrri úttekt @vidskiptarad er farið yfir efnahagsleg áhrif mála hvers ráðherra á liðnu þingi. Það er ljóst að þjóðin á mikið undir því að ríkisstjórnin setji mál með jákvæð efnahagsleg áhrif í öndvegi á komandi þingvetri.
1
9
492
Þarf ríkið að gera allt, þ.m.t. verja um milljarði í að stofna líkbrennslu? Svarið er greinilega já.
Stakk niður penna í ViðskiptaMogga gærdagsins💸
Fyrstu 177 dagar ársins fóru í að vinna fyrir öðru en útborguðum launum. Það má vona að stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðar sameinist um aðgerðir svo Útborgunardagurinn verði fyrr á næsta ári.
vi.is/greinar/gledilega-utbo…
Allar 180 umsagnirnar um áform heilbrigðisráðherra um að banna nikótínvörur með bragði eru á einn veg, áformin eru þvæla. Þessi er persónulegt uppáhald.
🏠Viðskiptaráð hefur sent kvörtun til ESA vegna þríþætts stuðnings hins opinbera við svokölluð húsnæðisfélög. Að okkar mati brjóta stofnframlög, lóðameðgjafir og niðurgreidd lán gegn ákvæðum EES-samningsins um ólögmæta ríkisaðstoð.
Nú stendur loksins til að sameina sýslumannsembættin í eitt. Hins vegar er engin hagræðingarkrafa gerð í frumvarpinu þótt sameiningin geti sparað 700 m.kr. á ári. Vonandi bætir Alþingi úr því.
Ef það væri bara einhver leið til þess að milda höggið..
mbl.is/frettir/innlent/2025/…
61
2,073
Boðaðar breytingar væru afturför frá jákvæðum breytingum síðustu ár á leigubílamarkaði þar sem þó eru enn miklar aðgangshindranir. Þær eru einnig beinlínis í andstöðu við ítrekaðar ábendingar frá ESA til íslenska ríkisins um að stöðvarskylda brjóti gegn EES samningnum.
Almannahagsmunir í aftursæti á leigubílamarkaði🚕
Eftir jákvæðar breytingar á leigubílalögum ætla stjórnvöld að stíga skref til baka og m.a. setja á stöðvarskyldu. Þegar eru í gildi óþarfar aðgangshindranir á markaðnum sem ætti að afnema, t.d. námsskeiðskröfur bílstjórar: 1/🧵
2
23
6,756
Af heildartekjum íslenskra fjölmiðla hefur RÚV 27% tekna á fjölmiðlamarkaði, en hlutfallið er að jafnaði 10% á öðrum Norðurlöndum. RÚV er eini norræni ríkismiðillinn sem fjármagnaður er með opinberum framlögum og samtímis í virkri samkeppni við einkaaðila um auglýsingatekjur📺
Meira hér í úttekt @vidskiptarad: vi.is/skodanir/afsakid-hle
4
349
Fyrirlitleg og ógeðfelld framkoma í garð dragdrottningar sem les fyrir börn og kynnir þau fyrir fegurð fjölbreytileikans. Svona pakk á ekkert skilt við hægri pólitík enda er frjálslyndi og umburðarlyndi grundvöllur hægri stefnunnar. Þetta eru ofbeldismenn.
Upphafið að endalokum ÁTVR og upphafið að virkri samkeppni á leigubílamarkaði að raungerast í einni og sömu vikunni, hversu fallegt!
Gaman að sjá þennan gríðarlega áhuga á landsfundi D á forritinu, enda mögnuð lýðræðissamkoma. Hlakka til að sjá ykkur öll eftir tvö ár 💙




















