Íslensk málnefnd (@malnefnd) header
Íslensk málnefnd (@malnefnd) profile picture

Íslensk málnefnd mótar málstefnu til þess að efla og varðveita íslenska tungu.

Joined February 2020
Photo by Íslensk málnefnd (@malnefnd)Photo by Íslensk málnefnd (@malnefnd)Photo by Íslensk málnefnd (@malnefnd)Photo by Íslensk málnefnd (@malnefnd)Photo by Íslensk málnefnd (@malnefnd)Photo by Íslensk málnefnd (@malnefnd)Photo by Íslensk málnefnd (@malnefnd)Photo by Íslensk málnefnd (@malnefnd)
Farsælt komandi ár, góðir Íslendingar til sjávar og sveita!
2
8
741
Háskólamenn eru stundum vond fyrirmynd og nota erlend orð í stað meistaraprófs og meistaranáms. Engin ástæða er að veigra sér við að nota góð og þægileg íslensk orð af þessu tagi.
1
10
855
Þekkt er að Björn Guðfinnsson amaðist við sögninni ske í málfræðibók sinni, kallaði hana erlendan slæðing og vart prenthæfa. Mjög hefur dregið úr notkun hennar síðan og raunar dönskuslettum yfirleitt.
3
585
Þegar nýársnóttin nálgast er upplagt að rifja upp að ekki er ritað j í þessu orði: is.wikipedia.org/wiki/N%C3%B…
5
571
Orðið „hjartkær“ er líklega notað meir á Þorláksmessu en alla aðra daga ársins til samans og gott að rifja upp sögu þess af því tilefni: ritmalssafn.arnastofnun.is/d…
1
1
376
Fólk er kannski ekki oft dolfallið í nútímanum en það eru þó ýmis tækifæri til að nota þetta ágæta orð líkt og fræðast má um með notkun Orðanetsins: ordanet.is/fletta/hugtok/ver…
3
450
Ekki þykir ástæða til að endurbirta gamlar færslur um aðventuna en við minnum í staðinn á „pikkisdaga“ (sbr. pinse, pfingsten) en það orð var notað á miðöldum um hvítasunnu: onp.ku.dk/onp/onp.php?o62297
2
344
Eins og sjá má á Málinu er jólaglögg merkilegur drykkur sem er til bæði sem hvorugkyns- og kvenkynsorð: malid.is/leit/j%C3%B3lagl%C3…
4
441
Eðlilegt er að rifja upp nöfn jólasveina á aðventu. Hér má finna fróðleik þar um: arnastofnun.is/is/utgafa-og-…
1
3
1,241
Skilafrestur er gamalt og gott íslenskt orð en núna margir „dauðalína“ í talmáli. Þessi sletta er þó tiltölulega fágæt á prenti eins og hér má sjá: timarit.is/?q=dau%C3%B0al%C3…
1
354
Músarrindill er oftast ritaður með tveimur r-um (og stundum músarbróðir) en myndir með einu r-i hafa þó tíðkast alla tíð: is.wikipedia.org/wiki/M%C3%B…
2
253
Mannsnafnið Líkafrón hefur lengi verið umdeilt en ein ástæða þess að það er notað á Íslandi eru vinsældir Líkafróns sögu: handrit.is/manuscript/list/t…
1
353
Eitt óvenjulegasta blómanafn íslenskt er gleym-mér-ei sem stundumst kallast kattarauga eða ástagras: idord.arnastofnun.is/leit/ka…
1
2
258
Flestir kannast við skjótta hesta en færri við litförótta en þeim er lýst hér: litfari.is/litfoumlroacutett…
5
308
Fæst íslensk dýr hafa rófu heldur er talað um skott, stert, hala, tagl, dindil og stél eins og sjá má hér: is.wikipedia.org/wiki/Skott
1
6
404
Orðið „rettusmetti“ er ekki gamalt hnjóðsyrði um reykingamenn en þótti þó vel til fundið þegar tóbaksvarnablaðið Takmark efndi til spurningakeppni fyrir rúmum 40 árum: timarit.is/page/3126031#page…
3
327
Heiti um íbúa staða eru fjölbreytt í íslensku og ekki ævinlega fylgt sömu aðferð. Þannig er almennt talað annars vegar um Laxdæli en hins vegar Svarfdælinga en raunar finnast líka dæmi um Laxdælinga og Svarfdæli.
2
388