Valur Thor retweeted
Ný grein eftir mig á Nútímanum.
Ég las á FB í dag að Nútíminn hefði endanlega sýnt að hann væri rasískur. Vitnað var í frétt um atburð erlendis þar sem ráðist var á konu. Spurning mín er: Er það vegna þess að fréttin segir frá hópi blökkumanna sem ræðst á hvíta konu sem höfundur færslunnar fær úr því skorið að fjölmiðillinn sé rasískur?
Hvað má segja? Hver ákveður það? Hvar eigum við að setja mörkin, og hver á að setja þau? Er Vísir líka rasískur fyrir að segja frá fæðingu þar sem eiginmaður meinaði karlkyns sjúkraliðum að hlúa að konu sinni?
Þessi grein á örugglega eftir að fara fyrir brjóstið á mörgum, sérstaklega þeim sem vilja ekki heyra staðreyndir sem stangast á við heimsmynd þeirra.
nutiminn.is/adsendar/hvers-v…
Valur Thor retweeted
„Viðbrögð eiginmannsins eiga samkvæmt heimildum fréttastofu rætur sínar að rekja til mismunandi menningarheima.”
Þú segir ekki!
Í fréttinni kemur skýrt fram í hvora áttina aðlögunin er, jafnvel í málum sem varða líf og heilsu.
Öfug aðlögun (inngilding) á Vesturlöndum hefur haft hræðilegar afleiðingar og ekki hvað síst fyrir fólk sem þarf hjálp.
Í Evrópu eru lönd þar sem sjúkra- og slökkvilið fer ekki inn í ákveðin hverfi nema í lögreglufylgd og jafnvel hverfi sem lögreglan hættir sér ekki inn í.
Við VERÐUM að gera öllum ljóst að hér gildi íslenskar reglur og siðir en ekki fara braut síaukinnar eftirgjafar gagnvart fólki sem ætti margt ekki að vera á landinu, hvað þá að leggja Íslendingum línurnar.
Konan fæddi barnið. Eiginmaðurinn setti skilyrðin. Sjúkraflutningafólkið fékk fjölmenningarfræðsluna. Einhver þurfti greinilega að endurskoða viðhorf sín.
Hverjum sem les fréttina má vera ljóst að þess er krafist að íslömsk blygðunarregla ráði för. Kona fái umönnun konu svo karlkyns starfsmaður hvorki sjái né snerti líkama hennar. Hæfni starfsfólksins er ekki ágreiningsefnið. Kyn þess er það.
Þarna er því árekstur við jafnræðisregluna. Hæft heilbrigðisstarfsfólk á að víkja vegna kynferðis síns. Hvað konan sjálf vildi kemur ekki fram í fréttinni. Forsendur eiginmannsins eru skýrar. Sérkennileg þögn í annars svo tillitssamri frásögn.
Við höfum þó haft fyrir því að festa jafnan rétt kvenna og karla í 65. grein stjórnarskrárinnar. Það mætti byrja fræðsluna þar.
visir.is/g/20262965327d/vild…
Þorgerður skrifar um kjark smáþjóðar til að láta rödd sína heyrast hjá Sameinuðu þjóðunum. Eitt íslenskt atkvæði hefði sómt sér vel í þeirri afmælisgrein. Árið 1975 samþykkti allsherjarþingið með 72 atkvæðum gegn 35 að síonismi væri birtingarmynd kynþáttahyggju. Ísland var eitt ríkjanna 35 sem sögðu nei.
Sextán árum síðar afturkallaði þingið ályktunina. Ísland þurfti engu að breyta.
1
14
209
Sú fyrirmynd sem við setjum á æðsta stall mótar það sem við teljum göfugt og það sem við leyfum okkur. Fordæmi hennar lifir áfram í athöfnum okkar og þeim gildum sem við miðlum til næstu kynslóðar. Menning ber því svip þess sem hún hefur lært að líta upp til.
38
Valur Thor retweeted
*סרטון קשה לצפייה*
בן עוזרי נקרא היום לחלץ את הכלב שנאבק על חייו בתעלת הביוב בסמוך למעלה אפרים. נמצאו 2 גופות של כלבים, כלב אחד חולץ בחיים. משטרת מחוז ש״י פתחו בחקירה. שאלוהים ישלם למי שעשה את זה, איזו אכזריות מטורפת.
תודה לבן שטס למקום לחלץ את הכלב.
לכל מי שיש מידע-פנו למשטרה
Skelfilegt að sjá.
En hvað er hér á seyði í Júdeu og Samaríu? Er það landtökufólkið sem kemur hundi til bjargar? Það væri dálítið annað hlutverk en því er jafnan ætlað í frásögnum þaðan.
Bent hefur verið á tvær hadítur, frásagnir af orðum og gerðum Múhameðs spámanns. Í annarri kemur engillinn Gabríel ekki inn til hans vegna þess að hvolpur liggur undir rúminu. Í hinni segir að Múhameð hafi skipað mönnum að drepa hunda.
Múhameð spámaður er æðsta fyrirmynd múslima í orði og verki. Sá sem les þessar frásagnir sem fordæmi getur því litið á eigin andúð á hundum sem merki um trúrækni. Þannig finna múslimar trúarlega réttlætingu fyrir því að fara illa með þá.
Og það sem þessir hundar máttu þola... 💔
Palestinians were seen throwing many tied-up dogs into a pond near Ma’ale Efraim, in Judea and Samaria. Israelis came and rescued the last dog. All others drowned.
1
16
270
Ég kannast vel við þá Viðreisn sem Þorsteinn lýsir hér. Það þarf auðvitað „sterk bein“ til að lofa kjósendum einu og útskýra svo fyrir þeim hvers vegna það var prinsippmál að gera hið gagnstæða. Sérstaklega ef maður ætlar að trúa skýringunni sjálfur.
visir.is/g/20262964374d/hin-…
5
133
Það er gaman að heyra í Friðriki Sophussyni hér.
„Nýfrjálshyggja“ er orðið býsna rúmgott. Þar má koma fyrir nánast öllu sem miður fer í efnahagslífinu og senda svo kapítalismanum reikninginn. Skilgreiningin skal vera á reiki, svo öllum sé ljóst hvað þeim á að finnast. Það er auðveldara að kenna fólki að fyrirlíta orð en að sannfæra það um að hafna frelsinu sem orðið hefur verið límt á.
Þessi freisting er víða í umræðunni. „Rasismi“ getur orðið að svari við spurningu sem menn kæra sig ekki um að svara. „Alþjóðalög“ eru auðvitað nefnd með slíku guðrækilegu yfirbragði að maður á helst að taka ofan áður en maður spyr hvaða réttarregla eigi við og hvers vegna.
Það mætti gera þá lágmarkskröfu að menn sundurliðuðu reikninginn áður en þeir heimta að við borgum hann.
7
139
Valur Thor retweeted
Ríkisstjórnarmiðillinn fær utanríkisráðherra í viðtal þar sem stjórnmálamaðurinn rær lífróður. Þægilegt spjall. Enn betri fyrirsögn.
Þessu fólki er ekki sjálfrátt.
Valur Thor retweeted
Okkur er ekki viðbjargandi. #íslenskumenntaverðlaunin
Alþjóðalög hafa verið gerð að skálkaskjóli geðþótta. Sökudólgurinn valinn fyrst og mælistikan síðan. Moynihan varaði við slíkri hugtakamisnotkun 1975. Utanríkisráðherra smáríkis ætti að skilja hvað tapast. Við gætum sjálf þurft á reglunum að halda.
On this day in 1975, the U.N. declared Zionism to be “a form of racism.” U.S. representative Daniel Patrick Moynihan delivered the greatest speech ever at the United Nations — for its moral force, brilliant arguments, soaring rhetoric, vigorous and compelling delivery, and singular use of the English language.
“As this day will live in infamy, it behooves those who sought to avert it to declare their thoughts so that historians will know that we fought here, that we were not small in number — not this time — and that while we lost, we fought with full knowledge of what indeed would be lost.”
Full speech: unwatch.org/moynihans-moment…
4
121
Samfélag getur rúmað ólík þjóðarbrot, trúarbrögð og hefðir. Það er ekki án vandræða. En það getur ekki til lengdar byggt á ósamrýmanlegum hugmyndum um það hvaðan æðsta vald ríkisins kemur, hverjum ríkið tilheyrir og hvaða grundvallarreglur allir borgarar þess eiga að virða.
Vandinn er skortur á sameiginlegum forsendum fyrir sambúðinni. Andstæðar grundvallarhugmyndir verða ekki samrýmanlegar við það eitt að þeim sé komið fyrir undir sama þaki.
Valur Thor retweeted
Árið 1927, þegar 300 ár voru liðin frá Tyrkjaráninu, var haldin fjölmenn minningarathöfn í Vestmannaeyjum til að minnast fórnarlamba þessa hörmulega atburðar.
Á næsta ári verða 400 ár liðin frá Tyrkjaráninu.
Árið 2024 lögðu Birgir Þórarinsson og fjórir aðrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins fram þingsályktunartillögu um að minnast þessara tímamóta með formlegum hætti. Tillagan hlaut ekki afgreiðslu Alþingis og virðist henni ekki hafa verið fylgt frekar eftir.
Það væri vel við hæfi að Íslendingar minntust þessara tímamóta með sambærilegum hætti og gert var fyrir tæpri öld.
Ef Alþingi ætlar ekki að beita sér fyrir því að minnast þessara tímamóta með formlegum hætti, væri tilvalið að ungir Miðflokksmenn tækju frumkvæðið og boðuðu til samkomu, til dæmis með kertafleytingu til minningar um fórnarlömbin.
Í síðustu viku ræddi Oddur Ævar Gunnarsson, „fréttmaður“ á Vísi, við Karim Askari, formann Stofnunar múslima á Íslandi, um komu sjaríadómarans Muhammad Taqi Usmani í moskuna við Skógarhlíð.
Ég hafði aldrei séð þennan Askari áður, en við lestur viðtalsins vaknaði forvitni mín. Það var eitthvað svo sláandi hvað maðurinn var kaldur í svörum. Það vottaði til dæmis ekki fyrir skilningi á því að Íslendingum gæti staðið ógn af boðskap manns sem hefur talað fyrir grýtingum og öðrum grimmilegum refsingum.
Sjaríadómarann sagði hann hafa verið ferðamann sem leit við í moskunni, og að míkrafónninn hefði óðar verið tekinn af honum ef í máli hans hefði farið að gæta einhverra öfga, enda fylgdu þau í moskunni íslenskum lögum. Það sem Usmani boðaði væri hins vegar „leyft í hans landi“.
Fréttamaðurinn Oddur Ævar var náttúrlega ekkert nema sleikjuskapurinn líkt og fréttamanna er háttur gagnvart múslimum. Hann hefði vel getað spurt formanninn: Hvað finnst þér sjálfum um það sem sjaríadómarinn hefur boðað? Finnst þér það eðlilegt? Er eitthvað í boðskap hans sem þú fordæmir afdráttarlaust? En því miður voru engar áleitnar spurningar bornar fram og viðtalið var þannig séð einskis virði.
Já, allt var þetta kunnuglegt – og ómerkilegt. En eins og ég sagði vakti kaldraninn í Askari áhuga minn svo ég fór að grúska aðeins.
Ekkert bitastætt fannst þó um hann á netinu svo ég kíkti á Facebook.
Á síðu moskunnar var myndbandið frá heimsókn sjaríadómarans ásamt auglýsingum um fyrirlesturinn enn aðgengilegt. Og engir fyrirvarar voru þar gerðir við þær öfgaskoðanir sem hann aðhyllist.
Helgin var gengin í garð og ég hugðist verja henni í eitthvað uppbyggilegra, en mér rann blóðið til skyldunnar að skoða kauða betur. Ég fór því inn á Facebook-síðuna hans.
Og boy, oh boy.
Þarna var ýmislegt áhugavert sem ég mun fjalla um síðar.
En eitt af því sem vakti athygli mína var viðtal við hann í arabísku blaði sem hann hafði birt skjáskot af á Facebook.
Ég kann vitaskuld ekki arabísku svo ég kallaði gervigreindina til og bað um þýðingu.
Mest var þetta hefðbundið spjall um líf múslima á Íslandi, og ég var við það að missa áhugann þegar ég rak augun í nokkuð sem mér þótti ansi kynlegt.
Hann fór að ræða fyrstu kynni Íslendinga af íslam og sagði, samkvæmt þýðingu sem ég lét fleiri en eina gervigreind yfirfara:
„Íslenska samfélagið kynntist íslam og múslimum árið 1627, þegar hinn frægi múslimski sjóræningi kom til suðurhluta Íslands. Hann drap hér nokkra landsmenn og rændi 214 manns, sem hann flutti til Norður-Afríku, samkvæmt íslenskum frásögnum.“
Já, þið lásuð rétt.
Tyrkjaránið. Árið 1627. Nokkrir drepnir. Og talan 214.
Ég stoppaði.
Hvað var maðurinn eiginlega að segja?
Hann er að tengja einhverja verstu böðla Íslandssögunnar, manndrápara og þrælahaldara, við trú sína.
Þessi maður, sem hefur ekki skrifað einn staf um íslenska sögu og menningu á Facebook, er með ártal Tyrkjaránsins á hreinu og meira að segja tölu yfir þá sem voru hnepptir í þrældóm. Reyndar voru um 400 manns numdir á brott í Tyrkjaráninu árið 1627 í heild. Og á fimmta tug landsmanna voru drepnir.
En það eru ekki tölurnar sem hér skipta mestu máli, heldur framsetningin.
Hann lýsir Tyrkjaráninu sem fyrstu kynnum Íslendinga af íslam. Vopnaðir ræningjar koma hingað, myrða fólk og flytja hundruð manna í þrældóm. Og hann talar um hinn „fræga“ sjóræningja.
Það dylst ekki að hér kveður við einhvern andstyggilegan velþóknunartón. Ekkert í þessari frásögn gefur til kynna að honum þyki þetta óeðlileg eða neikvæð birtingarmynd trúarinnar. Þvert á móti er nánast eins og hann sé að rifja upp merkan áfanga í sögu hennar.
Og takið eftir einu: Hann er ekki að segja að þetta hafi verið fyrstu kynni Íslendinga af tyrkneskum eða norðurafrískum ræningjum. Hann er að segja að þetta hafi verið fyrstu kynni Íslendinga af trú þeirra. Íslam.
Hann kýs sjálfur að tengja trú sína við mannránin og þrældóminn, án þess að nokkur fordæming á voðaverkunum komi fram.
Eftir voðaverkin sem Tyrkjaráninu fylgdu var hér alsiða að prestar lykju predikunum sínum á þann hátt að biðja almættið að vernda þjóðina fyrir hundtyrkjanum. Þær bænir dugðu þjóðinni vel í fjögur hundruð ár. En nú er búið að afkristna þessa þjóð og biskupinn okkar talar af hlýhug um hermenn íslams. Enda eru þeir komnir aftur og verða áreiðanlega stórtækari en síðast.
Björn Bjarnason færir rök fyrir því að þetta sé búið hjá Viðreisn. Það er rétt hjá honum. Þjóðin hafnaði ESB-viðræðunum. Þar féll meginstoðin undir tilveru flokksins. Eftir standa flokksvélin og fólkið í ráðherrastólunum.
Án Evrópumálsins er Viðreisn aukahjól undir Samfylkingunni. Hún hefur enga sérstöðu sem ber uppi sjálfstæðan flokk. Að bíða eftir nýju tækifæri til að fá annað svar frá þjóðinni er sérhagsmunagæsla. Flokkur sem lofaði að verja almannahagsmuni ver nú ekkert nema eigin tilveru. Í Landsvirkjunarmálinu sjást svo saumarnir á loforðunum um faglega stjórnarhætti.
Ráðherrastólar geta lengt líf flokks. Þeir geta ekki gefið honum tilgang. Viðreisn situr enn. Það er allt sem eftir er.
youtube.com/watch?v=quSmNprm…
Vókið er ekki dautt. Það dafnar. Mamdani og El-Sayed sækja fram. Róttæk öfl fylkja liði og hófsamari Demókratar freistast til að fylgja þeim. Sjálfsmyndarpólitíkin skýlir íslamistum innan flokksins þegar uppruninn vegur þyngra en hugmyndirnar.
Við höfum horft til Bandaríkjanna sem mótvægis við trúarlega sundrungu Evrópu. En sameiginleg borgaravitund varðveitir ekki sjálfa sig. Þegar flokkar byggja fylgi sitt á aðskildum trúarhópum fremur en sameiginlegum gildum safnast atkvæðin saman. Þjóðin ekki.
🚨 Douglas Murray joins The Rubin Report to discuss the brutal truth of the midterm loss the GOP doesn't want to hear...
WATCH HERE: shorturl.at/TwtKd
2
24
360






























