Arnar Arinbjarnarson retweeted
Ég er að sjá verða til nýja og gríðarlega verðmæta tegund af starfsmanni. Köllum hann Markaðsverkfræðing.
Hann er AI-native og getur sjálfur:
- Smíðað vefi og verkfæri með AI-forritun
- Tengt kerfi, gögn og API og sjálfvirknivætt verkferla
- Hannað auglýsingar, myndefni og markaðsefni
- Byggt, keyrt og fínstillt herferðir með AI-agentum
- Sett upp tracking og events á öllu söluferlinu
- Keyrt A/B prófanir og nýtt gögn til að auka sölu
Hann þarf ekki að bíða eftir hönnuði, forritara eða gagnagreinanda. Hann fer frá hugmynd í framkvæmd á nokkrum klukkustundum.
Það eru kannski 10 svona á Íslandi í dag.
Arnar Arinbjarnarson retweeted
Það er búið að tala fjálglega um „gríðarlegan áhuga fjárfesta“ á þessu rusli í meira en ár. Enn er draslið til sölu, skuldsett upp í rjáfur og engin von í sjónmáli vegna þess að þessi gerviiðnaður getur ekki búið til tekjur, einungis þegið styrki. Vonandi mun þetta ekki ríða OR að fullu vegna þess að mér sýnist að þetta gæti orðið altjón visir.is/g/20262964301d
Arnar Arinbjarnarson retweeted
Núverandi ríkisstjórn segist stefna að hallalausum fjárlögum sem er virðingavert. En það nær enginn tökum á fjármálum án þess að ná tökum á útgjöldum og ríkisstjórnin sýnir enga viðleitni í þeim efnum, þess í stað er framkvæmdum frestað og nýir letjandi skattar lagðir á atvinnulífið.
Sem dæmi má nefna að útgjaldaaukningin til málefna öryrkja og fatlaðs fólks er 41 milljarður, til samanburðar er áætlað að baðlónaskatturinn skili 4 ma.kr., gistináttaskattur 4,2 ma.kr. og auðlindaskattur eftir 10 ma.kr. hækkun skili 22 ma.kr. Þessir þrír skattstofnar sem allir voru réttlættir með innviðauppbyggingu ná því ekki einu sinni að vega upp eins ár kostnaðarauka í þessum eina málaflokki.
Áætlað er að fjársýsluskattur skili 14milljörðum króna eftir 6 ma.kr. hækkun á sama tíma hækka liðurinn fjölskyldumál um 18,2 milljarða.
Þorgerður Katrín sagði eftir að Ingvar Þóroddsson yfirgaf Viðreisn að þessi stjórn ætli að ná hallalausum fjárlögum og til þess þurfi sterk bein. Á sama tíma hækka fjárheimildir til utanríkismála um 38,5% og nema 7,4 milljörðum, eru það sterk bein?
Arnar Arinbjarnarson retweeted
Ragnar Freyr Ingvarsson læknir útskýrir fyrir Gunnari Smára hvers vegna opinber rekstur er svona dýr.
Hann bendir á að í eigin rekstri þurfi hann hvorki mannauðsstjóra, samskiptadeild né verkefnastjóra. Með öðrum orðum telur hann að yfirbygging hins opinbera sé gríðarlega umfangsmikil.
Fyrr í viðtalinu hafði Ragnar greint frá því að 11.500 manns væru á biðlista eftir aðgerð og að þeim hefði fjölgað um 13% á einu ári.
Á öðrum tímapunkti í viðtalinu greindi Gunnar frá því að hann hefði sjálfur þurft að bíða í tvö og hálft ár eftir aðgerð. Á þeim tíma hefði hann þjáðst af miklum verkjum sem ollu honum svefntruflunum og hefðu leitt til þess að minni hans væri nú skert.
Ragnar benti á að undir eðlilegum kringumstæðum hefði Gunnar ekki átt að þurfa að bíða lengur en 90 daga eftir aðgerðinni.
Arnar Arinbjarnarson retweeted
Yfir 2.500 erlendir nemendur stunda nám við HÍ á kostnað íslenskra skattgreiðenda. Þetta eru milljarðar á hverju ári sem fara úr vösum Íslendinga í vasa útlendinga. Á sama tíma þurfa skattpíndir Íslendingar að panta tíma til að fá að panta tíma hjá heimilislækni...
Arnar Arinbjarnarson retweeted
Hárrétt hjá Arnari.
Við nálgumst svo óðfluga þann tímapunkt að það verður ómögulegt að snúa við af þessari braut vegna sístækkandi hóps fólks sem lifir á samborgurum sínum. Þetta fólk mun aldrei kjósa stjórnmálamenn sem ætla að skerða bætur eða leggja niður opinber störf.
Áfram höldum við að fjalla um velferðarkerfið á vettvangi Morgunblaðsins.
Stjórnvöld hafa brugðist trausti skattgreiðenda í velferðarmálum því þetta er allt í rugli. En úr því að enginn annar er að skoða þetta þá gera @skattgreidendur það og við erum rétt að byrja.
Þetta á að vera kerfi án oftrygginga og vantrygginga og sá sem greiðir á ekki að vera verr settur en sá sem þiggur, eins og Pétur H. Blöndal heitinn sagði.
Mér finnst glæpsamlegt hvernig farið er með skattpeninga almennings. Það er ekkert eftirlit og allt á sjálfstýringu, öryrkjar sem eiga börn hafa það t.d. miklu betra fjárhagslega en venjulegt vinnandi fólk.
Við erum með risastórt bákn af fólki sem er ekki að vinna vinnuna sína líklega því það er ekki hæft til þess, eftirlitskerfin eru ónýt, stefnumótandi rannsóknir sem oftast er úthýst til Háskóla Íslands eru ónýtar, og þessu fólki sem er treyst fyrir að vinna vinnuna sína virðist vera í verkfalli eða einhverjum aktívisma. Og kjörin þeirra, eins og veikindaréttur og lengd vinnuviku, eru slík að það mætti kalla þetta sjálftöku.
Hinn almenni borgari sem greiðir skatta veit ekki að það er verið að hafa hann að fífli. Hann treystir því að það sé verið að hugsa vel um peningana hans þó alltaf er seilst dýpra og dýpra í vasa hans. Það þarf að benda honum á að það er verið að svíkja hann. Díllinn er líka slæmur, ef þú borgar ekki skattana ferðu í fangelsi - en það má eyða þessum skattpeningum með hvaða ævintýralega vitlausa hætti sem er og enginn þarf að bera ábyrgð.
Ofan í þetta allt saman þá er Skatturinn að taka niður fyrirtæki og rukka þau mörg ár aftur í tímann útaf álitaefnum vegna þess að skattalögin eru óskýr. Afleiðingin birtist í meiri útgjöldum ríkisins og minni tekjum ríkisins, eingöngu vegna einhverra aktívista í röðum starfsmanna Skattsins, svokallað allratap. Dæmi um þetta eru eftirá skattar á bílaleigur og fleiri dæmi sem verða vonandi opinber fljótlega. Það er ekkert meðalhóf lengur, bara ofbeldi.
Þá hefur ríkið jafnvel flutt hóp fólks frá þriðja heiminum hingað til lands, eingöngu til að koma því á velferðarkerfið og gera lífið hérna erfiðara og hættulegra.
Það er allt í rugli. Menntun barna okkar, heilbrigðiskerfið, útlendingamál, vegakerfið, sorpmál og raunar hvert sem litið er þar sem hið opinbera hefur puttana, þar fer allt í rugl.
Arnar Arinbjarnarson retweeted
Þetta er svo galið. Börnin mín eru sett í gámaeiningar í skólanum en það virðist vera nauðsynlegt að byggja lúxus fyrir þá sem hafa brotið samfélagssáttmálann. Virðing fyrir skattpeningum okkar er nákvæmlega engin.
Í stað þess að semja um vistun fanga í löndum þar sem það er ódýrara eins og Eistlandi eða Rúanda eins og nágrannalöndin hafa gert er fangelsismálastofnun komin í samkeppni við Bláa lónið í rekstri lúxushótela. Fermetraverð í þessu lúxus rítríti er áætlað 1,85 milljónir og laun á Íslandi með þeim hæstu í heimi. Það er allt rangt við þetta!
Arnar Arinbjarnarson retweeted
Pældu í því að vera svo örlátur á peninga annarra að þér finnst bara í lagi að íslenskir skattgreiðendur greiði háskólanám fyrir ALLA heimsbyggðina.
Hver vaknar á morgnana og velur sér svona málstað til að berjast fyrir?
Arnar Arinbjarnarson retweeted
Fyrir síðustu kosningar virðist þess misskilnings hafa gætt að Viðreisn væri atvinnulífsflokkur, það er ekki rétt. Viðreisn er atvinnumiðlun fyrir grasrót sína.
My first long form podcast ever with @FrostiLoga — talking about the future of Europe, Islamic influence, and incompatible migration in the West.
S04E66 - ÍSLAND VERÐUR EINS OG SVÍÞJÓÐ!
@frostiloga @leonhill
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á brotkast.is/askrift/
Arnar Arinbjarnarson retweeted
Athugið að þetta er ritrýnd rannsókn. Gerir Háskóli Íslands engar kröfur til slíkra rannsókna? Hvað með aðra háskólaborgara? Ætlast þeir til að verða teknir alvarlega þegar þetta er “standardinn” á efni sem kemur frá skólanum?
Arnar Arinbjarnarson retweeted
Fín grein hér. Þessi mál eru mikil vonbrigði fyrir kjósendur Viðreisnar auk þeirra sem héldu að Samfylkingin ætlaði að standa undir eigin nafngift ,,nútímalegir jafnaðarmenn”
Arnar Arinbjarnarson retweeted
Þessa dagana eru fimm ár liðin síðan tilkynnt var um stærsta miðstýrða áætlunarbúskapar verkefni Íslandssögunnar þegar lífeyrissjóðirnir skrifuðu undir viljayfirlýsingu um að fjárfesta 580 milljarða í "grænum" verkefnum á níu árum.
Upphæðin jafngilti rúmlega tvöföldum kostnaði Kárahnjúkavirkjunar en ólíkt Kárahnjúkavirkjun voru kjósendur aldrei spurðir álits og gátu ekki gefið samþykki sitt í kosningum eða refsað þeim stjórnmálamönnum sem stóðu að verkefninu.
Íslendingar eru skyldaðir til að greiða í lífeyrissjóði og hafa lítið val um hvaða lífeyrissjóð þeir greiða í. Það er klár umboðsskylda lífeyrissjóða að ávaxta þetta fé sem best en verja því ekki í gæluverkefni þeirra sem stýra lífeyrissjóðunum hverju sinni. En án samkeppni er ekkert aðhald.
Það er auðvitað erfitt að fara tilbaka í huganum um fimm ár en þá vorubæði Covid og loftlags hysterían í hámarki. Stjórnmálamenn töldu sig óbundna af reynsluviti kynslóðanna og trúðu hverju því sem þeir sáu í síðasta TED fyrirlestri eða TikTok myndbandi. Það er einmitt þess vegna sem það er mikilvægt að stofnunum eins og lífeyrissjóðum séu settar þröngar og skýrar reglur. Það er líka þess vegna að það er mikilvægt að fólk fái sjálft að ákveða hvernig lífeyrissparnaði þeirra er varið, því fólk fer betur með eigið fé en annarra.
Í tilkynningu frá lífeyrissjóðunum þegar verkefnið var kynnt fyrir fimm árum var sagt að verkefnið yrði metið árlega. Ekki hefur farið mikið fyrir því mati í fjölmiðlum, það væri fróðlegt ef fjölmiðlar athuguðu hver örlög verkefnisins hafi orðið áður en orðaflaumurinn byrjar að flæða yfir okkur af næstu COP ráðstefnu sem hefst í næstu viku.
Til að meta árangurinn af stefnunni er ekki nóg að spyrja hversu miklu fé hefur verið varið í verkefni sem eru stimpluð græn, það þarf líka að spyrja hvaða áhrif þessi stefna hefur haft á viðnámsþrótt Evrópu við innrás Rússa í Úkraínu þegar stærstu fjárfestar álfunnar voru markvisst búnir að svelta bæði orkuframleiðslu og vopnaiðnaðinn. Það væri einnig áhugavert að vita hvernig þessum fjárfestingum hefur vegnað miðað við hlutabréfavísitölur þannig að hægt verði að átta sig á hvaða kostnað almenningur hefur borið af þessari rausn lífeyrissjóðanna.
Arnar Arinbjarnarson retweeted
Strætó er prótótýpa fyrir Borgarlínu. Ef Strætó er ekki að virka, þá er það vísbending um að Borgarlína muni ekki virka. Góður punktur hér, hvers vegna ekki að færa Strætó nær því að vera eins og Borgarlína, auka framboðið, til að sjá hvort kenningin um að aukið framboð kalli fram svona miklu meiri eftirspurn standist. Það er miklu ódýrara en að láta þetta koma í ljós eftir tug- eða hundraða milljarða framkvæmdir.
Arnar Arinbjarnarson retweeted
Íslenska menntakerfið fær einkunnina fáránlega dýrt og lélegt. Sker sig alveg úr 💩
Arnar Arinbjarnarson retweeted
Frakkland er í mjög þröngri stöðu. Ríkið skuldar 117% af vergri landsframleiðslu (VLF), ríkið eyðir 57% af VLF, fjárlagahallinn er 5,4% af VLF, hagvöxtur er enginn.
Frakkland hefur komið sér í þessa stöðu með stjórnlausum ríkisútgjöldum ekki síst lífeyrisréttindum. Eftirlaunaaldur í Frakklandi er 62 ára og lífeyrir greiddur af ríkinu.
"Innri markaður" ESB er hvorki "innri" né "markaður", miklar hömlur eru á viðskipti milli landa innan ESB og afskipti hins opinbera af atvinnulífinu mikil (svo kölluð atvinnustefna).
Undanfarna áratugi hefur frönskum stjórnvöldum ekki tekist að koma böndum á ríkisreksturinn og alltaf þegar það hefur verið reynt hafa brotist úr óeirðir og lögleysa. Það hefur verið bundinn endir á það með að slá umbótum á frest og dúsum upp í ólátaseggina með auknum útgjöldum.
Nú logar landið í óeirðum, Frakkar eru í afneitun og halda þröng staða þeirra sé vegna "sveltistefnu". En skuldabréfamarkaðir eru að gefast upp á ástandinu í Frakklandi, hver vill að lífeyrissparnaður hans sé geymdur í frönskum ríkisskuldabréfum? Stjórnvöld hafa því varla neitt útspil gagnvart óeirðaseggjunum, Frakkland á nú þegar í vanda með að velta áfram skuldum sínum, ávöxtunarkrafa en 5%, sem eykur á hallarekstur enn frekar, hvað þá að þau geti aukið útgjöld.
Frakkland hefur líka lítið svigrúm til skattahækkanna, skattar eru nú þegar meðal þeirra hæstu í OECD og sliga hagvöxt verulega.
Það sem Frakkar virðast helst ætla að reiða sig á er að Evrópski Seðlabankinn (ECB) komi þeim til bjargar. Það eru áhöld um hvort ECB geti bjargað þeim eða hvort skuldir Frakklands séu einfaldlega of miklar til þess. En ef sú leið er metin fær og farin þá er það ekki hægt öðruvísi en að ECB setji Frakklandi stólinn fyrir dyrnar og krefjist úrbóta í ríkisfjármálum. Í dag er enginn stjórnmálaflokkur í Frakklandi styður slíkar breytingar og jafnvel þótt slíkur flokkur kæmi fram og næði völdum er ólíklegt að hann kæmi umbótum í framkvæmd án vargaldar.
Jafnvel ECB gæti komist framhjá reglum sínum og bjargað Frökkum án skilyrða um umbætur í ríkisfjármálum, þá er vandséð að aðrar þjóðir gætu sætt sig við það, hvers vegna ættu kjósendur annarra þjóða að sætta sig við að greiða fyrir miklu betri millifærslur í Frakklandi en þeir sjálfir njóta.
Á þessu sést auðvitað hvílík gæfa það var að Íslendingar sögðu nei í atkvæðagreiðslunni 29. ágúst. Ef við værum í evrunni þá væri klúður Frakklands líka okkar vandamál og við myndum þurfa að greiða hluta kostnaðarins.
Það er sýnu verra að við erum með stjórnlausum ríkisfjármálum og axarsköftum eins og tengingu almannabótakerfisins við laun og/eða launavísitölu hvort heldur er hærra, að apa upp mistök Frakklands.
Frakkland gæti innan skamms komist í þá stöðu að geta ekki fjármagnað sig og þurfa að grípa til róttækra aðgerða í ríkisfjármálum eins og Grikkland gerði. Slíkt væri algjört rof á þeim samfélagssáttmála sem Frakkar þó telja sig hafa. Hvort og hvernig franskt þjóðfélag kæmist í gegnum slíkt áfall er algjörlega óvíst og það er ástæða til að hafa verulegar áhyggjur af umrótinu sem því fylgir.
Sagt er að heimskur maður læri af eigin mistökum en hyggin maður læri af mistökum annarra. Því miður virðist núverandi ríkisstjórn einráðin í því að við Íslendingar þurfum að læra af eigin mistökum.
🇫🇷 FRANCE'S BORROWING COSTS HIT 24-YEAR HIGH AS DEBT FEARS MOUNT
France's 10-year government bond yield briefly topped 5% for the first time since 2002.
Violent protests, widening fiscal concerns and political gridlock are fueling a selloff in French debt.
PGIM warns of a “perfect storm” as investors question France's ability to rein in deficits.
The key risk: Rising borrowing costs could deepen France's fiscal crisis and revive eurozone debt concerns.

































